Bílamálun & Réttingar
A+ Bílamálun & Réttingar sér um bílinn þinn, hvort sem um ræðir tjónaviðgerðir eða aðrar þjónustur á borð við málun, réttingar, plastviðgerðir, framrúðuskipti og fleira. Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu af tjónaviðgerðum og sækja reglulega endurmenntun til að fylgjast með nýjungum í faginu.
Við erum með sveinspróf, meistarapróf, framrúðuréttindi, burðarvirkisréttindi og margt fleira sem gerir okkur kleift að ljúka viðgerð frá upphafi til enda á einum stað.
.
Einfalt tjónaferli
Frá tjónstilkynningu til viðgerðar – allt ferlið er einfalt og fljótlegt. Við metum tjónið á nokkrum mínútum, sjáum um samskipti við tryggingafélagið og afhendum bílinn.
Tjónstilkynning
Þú skilar tjónstilkynningu í gegnum þitt tryggingafélag og mætir til okkar í tjónaskoðun hvenær sem er á milli mán-fimmt kl. 7.30-17.00. Föstudaga frá 7.30 til 14.00
Tjónamat
Við skoðum tjónið og framkvæmum tjónamat. Tjónamatið tekur einungis um 5–10 mínútur.
Viðgerð
Þegar til viðgerðar kemur mætir þú með ökutækið. Ef við á, verður bílaleigubíll tilbúinn á staðnum
Afhending ökutækis
Við höfum samband þegar ökutækið er tilbúið úr viðgerð og þú sækir bílinn – kominn til fyrri dýrðar. Já, það er svo einfalt
Við þjónustum öll tryggingarfélögin